3.6.2008 | 16:08
Drápseðli mannsins er engu líkt.
Ekki má fréttast af villtu dýri í landinu þá er allt sett á annan endan til að hægt sé að drepa kvikindið.
Það eru til margar aðferðir til að svæfa dýr frekar en að nota lyf "sem ekki eru til í landinu".
Hér fyrr á árum var t.d. bara notað brennivín. Það er allavega betri kostur en að drepa dýrið,
sem vitað er að er í útrýmingarhættu.
Farið heldur og drepið eitthvað af þessum 70 þúsund hrefnum sem sagt er að sé hér kringum landið.
Betur má ef duga skal.
|
Reynt að koma í veg fyrir að fella þurfi næsta hvítabjörn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Hugsun
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 344
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Brennivín já? Hvað heldurðu að þurfi að koma mörgum flöskum oní bangsa til að hann sofni? Hvernig ætlarðu svo að koma því oní hann? Telur þú að það sé rétta svefnmeðalið fyrir bansa að fylla hann? Þú ert greinilega malbiksbarn sem hefur ekki nokkra einustu hugmynd um hvað það er að búa við það að fá svona heimsóknir. Fólk er aldeilis ekki tilbúið að fórna fjölskyldu sinni og bústofni til að frelsa bangsa. En auðvitað væri gott og blessað ef við hefðum rétta búnaðinn og vel þjálfað starfsfólk til að takast á við svona mál og ná dýrinu lifandi án þess að nokkur bæri skaða af. Í þessu tilfelli í dag var ekki annað hægt en að fella bangsa þar sem hann stefndi inn í þokuna, menn misst sjónar á honum og hann farið á bæi og gert óskunda.
Sigga (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 16:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.